Viðbrögð fólks við rústabjörgun ríkisstjórnarinnar oft með ólíkindum

Það var æpt hátt á Austurvelli í vetur og raunar víða um land. Yfirþyrmandi reiði gegn útrásarvíkingunum, mönnunum sem eru örugglega búnir að koma undan stórum summum í skattaskjól víðsvegar um heim, og á tímabili að minnsta kosti gegn þeim stjórnmálmönnum, embættismönnum og stofnunum sem létu þetta viðgangast. En minnið virðist æði skammvinnt, það virðist sem svo að það sé að líða fólki úr minni hvernig allt þetta byrjaði. Það er ekki nokkur vafi á að ófarirnar byrjuðu með einkavinavæðingu bankanna þriggja, Landsbanka, Kaupþings og Glitnis. Mikill meirihluti þjóðarinnar var fylgjandi því að einkavæða bankana, það væri skárri kostur en að þeir væru ríkisreknir með tilheyrandi spillingu, hyglun vina og ættmenna og tök stjórnmálaflokkanna í gegnum bankaráðin og pólitísku bankastjóranna.

En hverjir voru það sem leiddu og stóðu fyrir einkavæðingu bankanna? Er það virkilega að gleymast að það voru þeir sem þá sátu í ríkisstjórn, það var samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem réttu einkavinum sínum bankana á spottprís, Björgólfum, Ólafi í Samskipum og Finni Ingólfsyni svo nokkrir séu nefndir. Svo tóku glæframenn úr viðskiptalífinu fullan þátt í þessu, sérstaklega var það áberandi í Kaupþingi. En það var heitt í kolunum í vetur of ekki að undra.

En við fórum í gegnum kosningar í vor og út úr þeim kosningum kom afgerandi um boð til þeirra tveggja flokka sem þá þegar voru komnir í rústabjörgun, minna fór fyrir hinum háværu pottalemjurum, þó varð til lítill flokkur Borgarahreyfingin með fjóra þingmenn og þeirra framganga virðist æði brottgeng.

En síðan rústabjörgunin hófst undir forystu Jóhönnu og Steingríms virðist hafa myndast tvenns konar hávær öfl sem ekkert gera nema æpa og öskra svo sem fyrrum. Það eru annarsvegar mjög óábyrgir stjórnmálamenn í stjórnarandstöðu á þingi og þar fer fremstur í flokki hinn nýi formaður Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð og hefur sér til fulltingis tvær þingkonur, þær nefnst Vigdísi og Eygló. Þessi þríeining er ný á þingi og það er dapurlegt að þetta tiltölulega unga fólk virðist halda að það veki best á sér athygli með upphrópunum og ábyrgðarleysi. Þetta eru engir venjulegir tímar og þó þau séu ný á Alþingi þá bera þau ábyrgð á fortíð og afglöpum Framsóknarflokksins, þau ættu þess vegna ekki að hreykja sér hátt með óábyrgum upphlaupum, þjóðin er búin að fá nóg af slíku. Hins vegar eru ýmsir sjálfkjörnir einstaklingar sem stöðugt gera hróp að þeim sem í rústabjörguninni standa. Lengi hefur verið æpt á strætum og gatnamótum og auðvitað í fjölmiðlum "að ekkert sé gert" meira að segja ljósastauraökumaðurinn Eyþór Arnalds (sem DV gaf út sérstakt Suðurlandblað honum til heiður með forsíðumynd) "að landið sé stjórnlaust". Hann er aðeins einn af stórum hópi sem slíku hefur haldið fram þó allir viti bornir menn ættu að sjá og skilja að flórinn eftir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn verður ekki mokaður á einum degi, einum mánuði eða einu ár, það mun taka mörg ár.Það hefur verið unnið hörðum höndum af ríkisstjórn, öllum stofnunum ríkisins, samtökum atvinnurekenda og launþega að finna leiðir út úr þessum hrikalega vanda eftir að þessir tver flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkar, eyðilögðu undirstöður samfélagsins. Hefði þeir staðið sig betur í rústabjörguninni´ Og í dag heyrir maður að Hörður Torfason er kominn aftur á Austurvöll og veit nákvæmlega að allt sem nú er verið að gera til björgunar sé rangt. Ef þessi maður vissi nákvæmlega á sl. vetri hvað gera skyldi til bjargar, hvers vegna bauð hann ekki fram krafta sína og bauð sig fram til þings? Hörður Torfason er persónugervingur allir þeirra áábyrgu einstaklinga sem hafa ekkert fram að leggja annað en skammir, niðurrif og upphrópanir.

Við höfum þörf á öðru núna á þessum svo sannarlega síðustu og verstu tímum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Þakka þér fyrir þessa athugasemd þó ég mundi virða þig meira og taka þig alvarlegar ef þú hefðir þann kjark að koma fram undir nafni. Þú afsakar, en mér finnst ég sjá einn af þessum mótmælendum sem eru með hulin andlit, þora ekki að standa með því sem þeir eru að gera. Ég hef sjálfur verið mótmælandi og tel að þeir séu ekki á nokkurn hátt hafnir yfir það að vera gagnrýndir. Á sama hátt og þeir sem gefa sig stjórnmál, setjast á Alþingi, í sveitastjórnir og ríkisstjórn verða þeir að hafa einhverja heila hugsun og vita hvað þeir eru að gera. Að hverjum beinast mótmælin? Hverju er verið að mótmæla? Ég geri mér fulla grein fyrir að mótmælendur eru mjög mismunandi. Sumir eru með heila hugsun og vinna samkvæmt (sýnist þeir þó fáir)  en því miður eru allt of margir upphlaupsstrákar þó þar séu stelpur í bland, fólk sem hefur engan skilning á því sem er að gerst. Það eru þeir sem slösuðu lögregluþjónana í vetur, það eru þeir sem mættumeð verkfæri til að brjóta glugga í Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu. Var þetta unni í þágu einhvers málstaðar?

Það er ekki langt síðan ég byrjaði að blogga,  um leið fór ég að skoða hvað þar væri skrifað og skrafað. Satt best að segja hef ég verið alvarlega a hugsa um að hætta blogginu, mér finnst að í meirihluta sé þar eintóm þvæla og ég hef séð að mikill meirihluti er af þeirri gerðinni að "vera á móti" öllu. En ég ætla enn að halda áfram, það finnst eflaust mörgum að ég setji mig á háan hest og líti stórt á mig eða er mitt blogg og það sem ég segi nokkuð betra en hinna?

Ég ætla allavega að reyn að vera Málefnalegur og rökfastur. Ég fann það að ég var að verða fyrir áhrifum frá þeim fjölmörgu froðusnökkum sem á blogginu ryðja úr sé órökstuddum fullyrðingum. Fullyrði ég aldrei? Jú svo sannarlega, en ég ætla að reyna að vera málefnalegur á mínu bloggi, rökfastur og reyna sem hingað til að skrifa eins góða íslensku og mér er unnt. Ég var í 16 ár fastur pistlahöfundur á Morgunblaðinu og  ef ég hefði ekki skrifað yfirvegað, rökfast og sæmilegt mál hefði ég ekki enst þar svo lengi.

En svo var mér ýtt út og vegna þess að ég skrifaði um mál sem er það sem kallað er "tabú" enginn fjölmiðill á Íslandi fær að skrifa öðru vísi um það mál nema eftir hinni opinberu forskrift.

Þannig er málfrelsið í íslenskum fjölmiðlum á því herrans ári 2009, það væri vert r segjum Háskólanema að rannsaka ofan í kjölinn hverjir eru kjölturakkar fjölmiðlanna, þar ríkir svo sannarleg ægileg klíka.Get ég rökstutt þetta? Já og það mun ég gera!

Svo vona ég að ég heyri frekar frá þér og að þú sýnir þann manndóm að koma inn úr skugganum, láta vita hver þú ert og skrifir á eigin ábyrgð en liggir ekki lengur í leyni.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 21.6.2009 kl. 16:36

2 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Þakka þér fyrir að koma fram undir nafni. Þú segir að það komi fram á þínu bloggi, kannski finn ég það. En annað en nafnið þitt sem fram kom í þínum stutta pistli að frama er einhver speki sem ég ekki skil, hef greinilega ekki nógu sterkar heilasellur til þess.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 22.6.2009 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband