19.3.2010 | 14:14
Sigmundur Davíð rassskelltur í skoðanakönnun
Skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi stjórnmálaflokka og Ríkisstjórnar er merkilegt um margt. Stjórnarflokkarnir, Samfylking og Vinstri grænir tapa fylgi frá síðustu skoðanakönnun og tæplega er hægt að búast við öðru eins og ástandið var um það leyti sem skoðanakönnunin var tekin. Ég er ekki í nokkrum vafa að þar eru þrjú mál helstu orsakavaldar.
1. ICESAVE. Almenningur er orðinn yfir sig þreyttur á þessu máli og það alvarlegasta er að mikill fjöldi fólks skilur hvorki upp né niður í því, það er engin furða. Minnið er stutt og fjölmargir eru búnir að gleyma því hvernig þetta mál varð til. Fjölmargir eru búnir að gleyma því að orsökin er einkavæðing (les gjöf) forystumanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks til helstu fjárglæframanna og gæðinga sinna flokka ásamt því hömlulausa frelsi sem þessum einkabönkum var gefið.
2. Sú skelfilega bóla sem þandist út í kjölfar hrunsins í skuldstöðu allra sem skulduðu á Íslandi og oftast hefur verið kallað "Skuldastaða heimilanna"er mikil orsök, en rétt er að muna að þetta ástand hefur einnig hitt fyrir stóran hluta íslenskra fyrirtækja Þetta orsakast aðallega af tvennu; a) lánum sem miðast við erlenda mynt b) vísitölutrygging skulda. Risstjórninni hefur verið ásökuð fyrir að hafa ekki brugðist nógu hratt við þessum gífurlega vanda hins venjulega Íslendings og það má taka undir það. Hún gat brugðist miklu hraðar við og sýnt meiri stjórnun. Vissulega er búið að gera ráðstafanir til að bjarga mörgum, það þekki ég persónulega. En síðustu ráðstafanir sem Ríkisstjórnin hefur boðað eru mikil réttarbót fyrir hinn venjulega mann. Ég við enn og aftur undirstrika, eins og ég hef gert áður, að það verður aldrei hægt að bjarga öllum, sumir munu missa allt sem þeir eiga og hefði líklega misst allt þó ekkert hrun hefði orðið. En þeir eiga einnig sinn rétt til að lifa í framtíðinni við þolanleg kjör. Það á ekki að gefa skuldheimtumönnum og fjármálastofnunum rétt til að halda þessu fólki í fátækragildru ár eða áratugi fram í tímann. Með þeim ráðstöfunum sem Ríkisstjórnin er nú að gera á að vera girt fyrir það. Að standa uppi eignalaus er skelfilegt, það þekki ég einnig persónulega. En að vera hundeltur árum saman er ennþá verra, það þekki ég einnig. Ég bjó við það að banki og Skattheimta ríkisins voru með mig í sínum greipum í meira en ártug eftir að ég hafði misst allt. Ég vona að enginn þurfi að lifa slíku lífi og ég held að nú séu að renna upp mannúðlegri tímar.
3. Órólega deildin hjá Vinstri grænum hefur valdið miklum skaða. Ögmundur springur á limminu og er hylltur sem hetja að öfgafólki til hægri og vinstri. Ég þarf ekki að lýsa því nánar, hér áundan er sérstakur pistill um það efni. Sú hugmynd að dekstra Ögmund aftur í ráðherrastól hefur kannski ekki kostað Vinstri græna svo mikið í þessari skoðanakönnun. En ég er ekki í nokkrum vafa að margir góðir og gegnir jafnaðarmenn eru að refsa Samfylkingunni, þetta spil í kringum prímadonnuna Ögmund var of beiskur biti til að margt Samfylkingarfólk, og þar á meðal ég, geti kyngt honum.
Skoðum meira í þessari mjög svo merkilegu skoðanakönnun. Hún sýnir mikla sókn Sjálfstæðisflokksins og það ætti ekki að koma svo mjög á óvart. Þarna er Sjálfstæðisflokkurinn að fá fylgi sem byggist engan veginn á verðleikum Bjarna Benediktssonar eða annarra forystumanna flokksins. Þarna birtist að fjölmargir fylgjendur Samfylkingarinnar og reyndar "skynsama" hluta Vinstri grænna eru að refsa sínum flokkum, ekki síst fyrir samstöðuleysið sem orsakast af órólegu deildinni í VG og "kóngalátum" Ögmundar. Ég endurtek enn og aftur; þá var mér nóg boðið.
En skoðum þá eitt. Ef þetta er rétt greining hvers vegna kemur þetta ekki fram í aukningu hjá Framsóknarflokknum?
Þetta er það athyglisverðasta við þessa skoðanakönnun. Þessi niðurstaða sýnir hve mjög nýbakaður formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð, er rúinn öllu trausti. Þetta sýnir að almenningur í þessu landi lætur ekki hvað gapuxa sem er vaða uppi með stóryrði og bakferli, lætur ekki bjóða sér endalaust lýðskrum eins og Sigmundur Davíð hefur haft í frammi frá þeim fyrsta degi sem hann hefur starfað sem formaður Framsóknarflokksins. Enginn ungur maður, sem komið hefur inn í íslenska pólitík frá hruninu, hefur fengið annað eins tækifæri til ná tökum á sínu hlutverki, koma fram sem víðsýnn framtíðarleiðtogi, leiðtogi sem hóf sig upp fyrir það skelfilega argaþras sem mörgum, og það með réttu, finnst íslensk stjórnmál veru sokkin í.
En Sigmundur Davíð hélt að með því að stunda pólitískan smásmugulegan skotgrafahernað gæti hann orðið stór kall í íslenskri pólitík og fékk fullkominn frið til að stunda þann leik. Hann hafði fullan og óskoraðan stuðning þeirra Höskuldar, Vigdísar og Eyglóar þingmanna til að verða hælbítur en ekki leiðtogi. En rödd Höskuldar virðist þögnuð, lítið heyrist í Vigdísi. En Eygló kom mér á óvart þegar hún kom fram í Kastljósi til að ræða nýjustu ráðstafanir Ríkisstjórnarinnar í skuldamálum almennings, skyndilega var komin þingkona sem talaði af yfirvegun og málefnalega. Við skulum vona að þarna sé Eygló örlítið að opna augu fyrir því að moldvörpustefna Sigmundar Davíðs er dauðadæmd.
Þessi skoðanakönnun er rasskelling fyrir Sigmund Davíð og Framsóknarflokkinn. Það koma Alþingiskosningar fyrr eða síðar. Eina von Framsóknarmanna er sú, ef þeir vilja ná einhverjum árangri þar, er að losa sig við þann mann sem ég hef leyft mér að nefna versta "maðk" sem komið hefur inn í íslenska pólitík á síðustu árum.
Sá maður heitir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Það var hann sem réði því að við tókum ekki tilboði Breta og Hollendinga eftir áramótin um mikla lækkun á vaxtabyrði á ICESAVE. Ég hef að framan skrifað pistil um þetta moldvörpustarf Sigmundar Davíðs. Ef við hefðum samið á þessum nótum værum við laus úr ICESAVE spennitreyjunni. Við komumst ekki hjá því að greiða þessa skuld, en núna hangir þetta mál ófrágengið yfir okkur.
Getu Sigmundur Davíð skýrt fyrir okkur hvað það mun kosta okkur?
Sjálfstæðismenn ættu að stíga varlega til jarðar. Sú háa súla sem þeir sjá bláa á síðum Fréttablaðsins er ekki vegna þess að þeir njóti svo mikils álits og traust. Fylgi í skoðanakönnun, sem byggist á tímabundinni óánægju með aðra flokka, tollir illa í húsi.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Evrópumál, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Sigurður Grétar Guðmundsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
En hvað með ríkisstjórnina, var hún ekki flengd í þessari könnun líka?
Diddi (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 14:30
Já mikið er þetta satt en það má nú með sanni segja að sumir Íslendingar eru með gullfiskaminni og er það miður ef að fólk vill fá þessa ræfla sem að komu þjóðinni í þennan skít sem að við erum í. Og það er margt hjá þér sem að er líka hægt að heimfæra á flokkinn hans Bjarna Ben samanber skotgrafarhernaðinn og að vera hælbítur. Nú Íslendingar virðast bara haga seglum eftir vindi og með sitt gullfiskaminni þá er það skiljanlegt eins og einn erlendur sérfræðingur sagði: Íslenska þjóðin getur kennt sér sjálfri um að hafa kosið þetta stjórnmálaafl síðan 1991 og ættu að fara að koma þessum lýð frá sem að kom Íslandi á heljarþröm. Nei fjandinn ef að þessir 2 flokkar komast til valda aftur þá verður vina og vandamanna Ísland samanber Bankahrunið og spillingin allsráðandi og einnig það að ef að þessir flokkar komast til valda þá kemur þessi fræga skýrsla út vegna þess að henni yrði frestað óendanlega vegna þess að þessir menn sem að seldu bankana eru að skíta á sig af hræðslu.
Örninn
Örn Ingólfsson, 19.3.2010 kl. 15:55
Diddi, ég vil ekki taka svo djúpt í árinni að segja að Ríkisstjórnin hafi verið flengd, en hún fékk sterka áminningu og aðvörun. Hins vegar hef ég undrast að Ríkisstjórninni hefur tekist að halda um 50% stuðningi. Það má alltaf búast við því að ríkisstjórn sem er á bólakafi í óvinsælum aðgerðum missi stuðning. En ég vil að Ríkisstjórnin taka alvarlega þessa aðvörun. Ég vil að hún bretti nú upp ermarnar og hefji vegferðina inn í framtíðina með forystu um þær stjórnsýsluumbætur sem við þurfum og verðum að fá, þar er mér stjórnlagaþing efst í huga.
Ég spyr; af hverju hefur Alþingi ekki forystu í þessi máli, af hverju tekur löggjafarvaldið ekki forystuna, er framkvæmdavaldið búið að kengbeygja löggjafarvaldið þannig að það þori ekki lengur að hafa frumkvæði um eitt né neitt, hafi þá stefnu að afgreiða á færibandi frumvörp sitjandi Ríkisstjórnar og síðan jagast og rífast í þingsölum?
Sigurður Grétar Guðmundsson, 19.3.2010 kl. 16:09
Sigmundur uppsker eins og hann sáir.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.3.2010 kl. 19:23
Eins og talað út frá mínu hjarta Sigurður. Sigmundur Davíð er hreinlega ómerkilegur í málflutningi og það hefur og er að reynast okkur dýrt. Þó Bjarni Ben sé ekki uppá marga fiska er hann ekki alveg eins ómerkilegur í andstöðunni. Ríkisstjórnin fær gula spjaldið og það er gott. Hún hefði fyrst og fremst getað gert betur í að ganga frá Icesave (átti aldrei að hlusta á framsókn) og síðan að hraða atvinnuuppbyggingu en þar hefur hún brugðist að mínu mati. En grein þín er stórgóð og alltof sönn.
Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 20:16
Samfylkingin er að uppskera eins og hún hefur sáð. Fylgið hrynur, og þá er bent á Sigmund. Hreyfingin kemur líka illa út og það er heldur ekki réttmætt. Svo heldur dæmið áfram af því að botninum hjá Samfylkingunni er ekki náð. Jóhanna mun sitja þar til 5% fylginu er náð og þá er bara að innlima Þráinn Bertelsson.
Sigurður Þorsteinsson, 19.3.2010 kl. 23:53
Sigmundur Davíð ,er hreinskiptinn,þarf ekki að skreyta orð sín með óþarfa slaufum,reynið að reka ofan í hann,það er ekki hægt.
Helga Kristjánsdóttir, 20.3.2010 kl. 04:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.