Hvergi í stjórnskipunarlögum er gert ráð fyrir meirihluta og minnihluta, hvorki í sveitarstjórnum né á Alþingi

Hanna Birna borgarstjóri í Reykjavík hefur sett fram þá hugmynd að eftir sveitarstjórnarkosningarnar í lok maí setjist menn niður og komi sér saman um stjórn Reykjavíkurborgar án þess að mynda meirihluta og þar af leiðandi engan minnihluta. Það hefur lengi verið talið að myndun meirihluta í sveitarstjórnum sé sjálfsagður hlutur en þannig var það ekki í árdaga þegar sveitarstjórnir voru að þróast. Heldri bændur, sem skipuðu hreppsnefndina, komu saman eftir mjaltir og tóku ákvarðanir, Auðvitað þróaðist það þannig að sumir höfðu meiri áhrif en aðrir í krafti síns persónuleika en allir höfðu áhrif. Meirihlutamyndun í sveitarstjórn er ákaflega ólýðræðislegt fyrirbæri. Í sjö manna sveitarstjórn kom fjórir sér saman um að þeir skuli ráða ölu, þrír skuli engin áhrif hafa. Ég held að menn ættu í alvöru að fara að skoða þetta ólýðræðislega stjórnskipulag, sem ekki byggir á neinum lögum, gagnrýnum augum. Það alvarlegasta er þó þegar einhverjir taka upp á því að "slíta" meirihlutasamstarfi, reka bæjarstjórann (borgarstjórann) með tilheyrandi kostnaði fyrir sveitarsjóð (borgarsjóð). Slíkir atburðir gerðust í Árborg og Grindavík á því kjörtímabili sem nú er að renna sitt skeið. En það er fagnaðarefni, og sýnir hve Hanna Birna er sterkur stjórnmálamaður, að hún skuli leggja í að nefna þetta vandamál með meirihluta og minnihluta í sveitarstjórnum. Það ætti þó ekki að koma á óvart; sirkusinn í Borgarstjórn Reykjavíkur á þessu nánast liðna kjörtímabili var með slíkum ólíkindum að égskil vel að  Hanna Birna sé með með óbragð í munni eftir alla þá gerninga, slíkt rugl og vitleysa sem þar var í gangi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Góð ábending Sigurður, þetta er einmitt eitthvað sem einhverntíman skaut upp í hug mér . Hvernig í ósköpunum menn leyfa sér allt þetta vesen í myndun s.k. meirhluta í trássi við öll lög. Og það með ófyrirséðum kostnaði oft fyrir okkur skattgreiðendur eins og þú bendir á!  Meiri- og minnihluti getur auðvitað myndast um einstök mál , en að það sé fyrirfram umsamið hvernig því skuli háttað hlýtur að teljast á hæpnum grunni!

Spurning um að einhver fórni sér í að kæra þetta háttalag formlega. Skyldu ekki vera kæruleiðir, allvega til viðkomandi ráðuneytis, en reyndar hef ég reynslu af að það er ekki líklegt til að taka óvilhallt á máli sem þessu. En auðvitað er ómálefnalegt að gefa sér slíkt fyrifram.

Kristján H Theódórsson, 30.4.2010 kl. 10:44

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það verður áhugavert að sjá, hvort myndun sameiginlegrar borgarstjórnar verður möguleg.

Spurning, hvernig það verður fyrir tiltekið grínframboð, að vera með þeim hætti, varpað beint í alvöruna.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 30.4.2010 kl. 15:31

3 identicon

Sæll Sigurður

Getur ekki verið að Hanna Birna sé bara svona viss um að tapa borginni í hendurnar

á Jóni Gnarr og sé að slá upp ryki þess vegna?

Ólafur Sigurjónsson (IP-tala skráð) 30.4.2010 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 113920

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband