Er vonlaust að berjast við málfarsþrjóta, þeir taka ekki mark á neinni gagnrýni?

Örfá atriði í þetta skipti.

Það eru allir að berjast fyrir "að fjölga atvinnutækifærum". Í mínu ungdæmi gerðu menn sitt besta til "að auka atvinnu". Þetta sýnir í hnotskurn hvernig hugtök eru sett fram á nýjan hátt með  fjölgun  atkvæða. Í fyrra tilfellinu eru  atkvæðin 10 en í því seinna 6. Þetta sýnir okkar málþróun. Þar fyrir utan er áferð setninganna þeirri fyrri í óhag finnst mér, en eru það kannski elliglöp?

Enn bendi ég þeim sem skrifa texta á, hvort sem það er á blogginu eða í öðrum fjölmiðlum, hve orðið "staðsett" er ofnotað og það spillir næstum alltaf textanum. Reynið næst að lesa yfir textann ykkar og athugið hvort orðið "staðsettur" kemur þar fyrir. Fellið "staðsettur" brott. Ég er ekki í nokkrum vafa að allir munu sjá að það er nær alltaf til bóta. 

Ekki má gleyma garminum honum Katli. Íþróttafréttamenn segja gjarnan að "báðir" hafi skorað fimm mörk. Eftir mínum skilningi þá hefur hvor leikmaður skorað tvö og hálft mark, ekki satt.? Eða eiga bögubósarnir við að "hvor"leikmaður hafi skorað 5 mörk?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Sæll Sigurður

Þetta sem þú lýsir er hreint klám sbr. "læri, læri tækifæri".

Júlíus Valsson, 22.5.2010 kl. 01:59

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæll nafni

Nú er meira að segja Gylfi Arnbjörnsson farinn að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysið varðandi atvinnumálin. Sennilega getur aðgerðarleysi Jóhönnu flokkast undir elliglöp, hvort sem við tölum um að auka atvinnu eða fjölga atvinnutækifærum.

Sigurður Þorsteinsson, 22.5.2010 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 113870

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband