Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn sem er heill og óklofinn

"Ekki batnar Birni enn banakringluverkurinn" var sagt forðum og þetta flaug um hug minn eftir að hafa hlustað á viðtöl RÚV við þá Steingrím J. Sigfússon og Ásmund Einar Daðason eftir langan og strangan fund þingflokks Vinstri grænna í gærkvöldi. Sjaldan hef ég heyrt í mönnum sem héldu langar tölur en sögðu ekki neitt en þó svo mikið. Það mátti svo sannarlega skilja að hvorugur gat gefið ákveðin svör við spurningum fréttamanns. Ástandið í þingflokki Vinstri grænna er að þar  greinilega varanlegur klofningur. Þremenningarnir, Lilja, Atli og Ásmundur Einar, ætla að að halda sínu striki, þau er ekki hægt lengur að telja til stuðningsmanna Ríkisstjórnarinnar á þingi sem þar með er einungis með eins atkvæðis meirihluta og það skyldi maður ætla að gengi ekki lengi.

En ekki er allt sem sýnist. Klofningur Vinstri grænna er staðreynd og þess vegna mætti ætla að stjórnarandstaðan á þingi gripi tækifærið feginshendi og flytti vantraust á Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. En það er líklega það sem stjórnarandstaðan vill allra síst hætta sér út í. 

Og hvers vegna?

Vegna þess að stjórnarandstöðuflokkarnir eru allir meira og minna klofnir. Sjálfstæðisflokkurinn lýtur enn forystu Davíðs Oddssonar. Á yfirborðinu er flokkurinn á móti umsókn Íslands að ESB og þeir sem blindastir eru á Davíð Oddsson (Unnur Brá Konráðsdóttir t.d.) eru með tillögu um að stöðva aðildarumsóknina að ESB. Allir vita að fjölmargir Sjálfstæðismenn styðja aðildarumsóknina eindregið og rétt er að árétta að umsóknin og umsóknarferlið þýðir engan veginn að búið sé að ákveða inngöngu. Fyrst verður við að sjá hvað okkur býðst, síðan mun þjóðin ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort af inngöngu verður eða ekki. Það er einnig langt frá því að allir Sjálfstæðismenn fylgi gallharðri stefnu Davíðs og Morgunblaðsins í kvótamálinu, fjölmargir í þeirra röðum sjá að óbreytt ástand getur ekki gengið. Klofningurinn í Sjálfstæðisflokknum er svo djúpstæður að í bígerð er stofnun nýs hægri flokks sem einmitt ætlar að láta brjóta á ESB málinu, kvótamálinu og að afgreiða Icesave málið í eitt skipti fyrir öll.

Framsóknarflokkurinn er einnig klofinn í sömu málum. Þó ekki sé gamall og þreyttur flokksformaður sem ræður öllu á þeim bæ hefur komið í ljós að flokkurinn var æði seinheppinn með val á formanni. Sigmundur Davíð verður tæpast formaður til langframa, en hver tekur við?  Framsóknarflokkurinn burðast einnig með fyrri hneykslismál eins og Sjálfstæðisflokkurinn, þar vegur þungt allt hneykslið við einkavæðingu bankanna. Arfleifð þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar er flokknum þung byrði. Finnur Ingólfsson og fleiri Framsóknarmenn hafa látið greipar sópa um þá fjármuni sem ýmis fyrirtæki Sambands ísl. samvinufélaga skildu eftir sig, ekki síst það sem átti að skila aftur til viðskiptamanna Samvinnutrygginga.

Og ekki má gleyma garminum honum Katli. Hreyfingin er þegar klofin og meira að segja margklofin. Þetta var "bjartasta vonin" í augum margra sem fordæmdu alla stjórnmálaflokka og vildu ferska vinda inn á Alþingi. Hvað ferska vinda hefur Hreyfingin haft í farteskinu? Þingmenn hennar hafa dottið í röfl- og hælbítsfarið nákvæmlega eins og Sigmundur Davíð. Það hefur verið nokkur samkeppni milli þingamanna Hreyfingarinnar hver gengur lengst í innantómu þrasinu en sigurvegarinn er ótvírætt Þór Saari.

Sem bloggari fylgist ég að sjálfsögðu gerla með hvað kemur í pistlum þeirra sem þar eru að skrifa. Hjá sumum er hatrið á Samfylkingunni sá þráður sem ætíð er kjarninn. Freistandi væri að nefna með nafni þá helstu en ég ætla að láta það vera að sinni en það kann að koma síðar. Hatrið á Samfylkingunni helgast fyrst og fremst af ótta. Þrátt fyrir að Samfylkingin hafi gert mistök, sem ég segi af fullri alvöru að séu ekki mikil, þá ber allt að sama brunni:

Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn í dag sem er samstilltur og ókofinn. Þetta er merkileg staðreynd því Samfylkingin hefur nú í tvö ár leitt Ríkistjórn Íslands á erfiðustu tímum sem nokkru sinni hafa mætt Íslensku þjóðinni síðan hún hlaut fullveldi. 

Það er kominn tími til að halda þessu til haga. Mér finnst Samfylkingin engan veginn hafa beitt sínum vopnum til að verjast rógberum og hælbítum. Það kann að vera vegna þess að Samfylkingin hefur forystu fyrir endurreisn lands og þjóðar og hefur þess vegna ekki verið að eltast við lágkúruna sem einkennir stjórnarandstöðuna á Alþingi og þá flokka sem hana skipa og eru allir meira og minna klofnir og ráðvilltir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurður Grétar.

Oft ágætar greinar hjá þer en þetta er ekki alls kostar rétt hjá þér, þó svo að það geti vel verið að meðal þingliðs Samfylkingarinnar sé flokksræðið svo alls ráðandi og ein heittrúar halelúja ESB stefnan og lofsöngurinn þar um sé í gangi án nokkurrar efahyggju. 

Einnig það að allir þingmenn Samfylkingarinnar hafa einum rómi ávallt frá fyrstu tíð viljað samþykkja nánast allar kröfur Breta og Hollendinga og ESB apparatsins vegna ICESAVE og ávallt verið tilbúnir að skrifa undir nánast hvaða ICESAVE samning sem væri algerlega gagnrýnislaust.

En það sama á bara alls ekki við um stuðningsmenn flokksins, þ.e.a.s. þá sem ennþá eru eftir því samkvæmt síðustu skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins verið í nánast stöðgri niðursveiflu og verið að mælast þetta frá 18 til 24% fylgi. Sem þýðir það að flokkurinn hefur verið að missta 20 til 30% af stuðningsmönnum sínum fyrir borð.

Síðan hefur líka komið í ljós í skoðanakönnunum um ESB málið að enginn einn stjórnmálaflokkur er eins illa klofinn í því máli og einmitt Samfylkingin og þá á ég við þá sem enn eru þar eftir, en ekki eru þá talin með þau 20 til 30% fylgisins sem að horfinn eru á braut.

Því að kannanir hafa sýnt að 30 til allt að 40% stuðningsmanna Samfylkingarinnar sem enn eru eftir fylgja ekki flokksforystunni í ESB málinu, þ.e. að annaðhvort hafa þau mikla efahyggju um að ESB geri landi og þjóð nokkuð gott eða eru beinlínis á móti aðild.

Hjá öllum hinum stjórnmálaflokkunum og líka hjá því fólki sem enga flokka styður þá hefur andstaðan við aðild verið að mælast þetta 70 til 90 %. Það þýðir samt ekki að þeir hinir þ.e. 10 til 30% styðji endilega aðild. Margir þeirra eru hlutlausir eða vilja taka afstöðu síðar. Þeir sem eru hinns vegar á móti ESB eru yfirleitt einarðlega gallharðir á móti.

Enda heldur enginn furða að samkvæmt skoðankönnum sem sjálft ESB apparatið lét gera að aðeins 19% landsmanna telja hag Íslands betur borgið innan ESB heldur en utan þess.

Það stemmir alveg við það sem að aðrar kannanir hafa sýnt.

Það er staðreynd að það er sáralítill stuðningur við ESB aðild landsins.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 12:08

2 identicon

Þér finnst semsagt betra að hafa asnana alla saman í þyrpingu en að brjóta upp hópinn. Get ekki verið sammála þér þar.

Dagga (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 13:02

3 identicon

Eitthvað finnst mér Gunnlaugur misskilja afstöðu samfylkingarmanna. Stefna Samfylkingarinnar er ekki skilyrðislaus innganga í ESB. Stefnan er að sækja um aðild og ná sem bestum samningi, sem síðan verði borinn undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er samfylkingarmaður og fylgjandi ESB aðild. En ég er mjög efins um að við náum ásættanlegun samningi og ef svo verður mun ég hafna aðild. Ég  tel að margir samfylkingarmenn séu á sama máli. Að tala um klofning í þessu sambandi er rugl.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband