Þetta var skrifað sem athugasemd til Ómars Ragnarssonar í allri vinsemd

Ómar, mér finnst þú skeiða léttilega fram hjá ýmsu eins og kemur oft fram hjá ykkur sem farið stundum offari í umhverfismálum. Það hefur hvergi komið fram svo ég viti að verið sé að ofnýta Nesjavelli eða Hellisheiði. Reyndar er það viðurkennt að Hellisheiði, eða réttara sagt Hengillinn, býr yfir gífurlegu ónotaðri orku.

Okkur Jóhannesi Zoega var vel til vina og ég  held að ég viti í hvað þú ert að vitna í þegar þú vitnar í Jóhannes. Hann varaði við því að nota jarðgufu einungis til raforkuframleiðslu því með því verður yfirgengileg sóun á þeirri orku sem við fáum í iðrum jarðar. Með því að nota gufuaflið einungis til raforkuframleiðslu nýtum við gufuaflið einungis um 15%, annað glatast. En með því að nota gufuaflið fyrst til raforkuframleiðslu og sína í öðrum lið til að framleiða heitt vatn er nýtingin komin upp í 85% og er vart hægt að ætlast til að hún verði betri en þó eru til leiðir til að hækka nýtinguna. Þetta er það sem gert er á Nesjavöllum og verður einnig gert í Hellisheiðarvirkjun. En það er til orkuver sem einungis notar gufuaflið til raforkuframleiðslu og það er Krafla, tæp 15% nýting, annað er glatað. Við Kröflu er ekkert þéttbýli sem gæti nýtt heitt vatn frá orkuverinu til upphitunar.

En er þá engin leið til að nýta  þá orku sem glatast og hverfur endanlega? Mér verður oft hugsað til Kröfluvirkjunar og satt best að segja þá finnst mér þetta skelfilegt; að við séum að sóa orku á þennan hátt.  Ef frekari gufuaflsvirkjanir verða reistar á þessu svæði til að afla orku til álvers eða annarrastóriðju þá finnst mér þessi skelfilega sóun á auðlindum okkar verða ennþá skelfilegri.

Hvað er til ráða?

Það er einfalt mál tiltölulega, eins og sannast á Nesjavöllum og á Hellisheiði, að hita upp vatn með gufu eftir að hún hefur verið notuð til raforkuframleiðslu.

En hvernig á að nýta það heita vatna?

Hve mikið gætum við framleitt af grænmeti og blómum með allri þeirri orku sem ef til vill verður til boða í Þingeyjarsýslum? Er þarna um stóriðju að ræða sem enginn hefur gefið gaum? Getum við byggt risastórt ylræktarver fyrir norðan og þá kemur spurningu hvort þetta ylræktarver þarf ekki einnig á raforkunni að halda. Ef ylræktarverið á að framleiða grænmeti og blóm allt árið þarf það mikla raforku til lýsingar nánast hálft árið. Þarna yrði um framleiðslu að ræða sem ekki til er innlendur markaður fyrir, þessar afurðir yrði að flytja út og þar munframleiðslukostnaður og markaðsfærsla  ráða úrslitum.

Ég býst við að ýmiskonar fræðingar geti skotið þessar vangaveltur á kaf en er ekki einmitt tími núna sem krefst þess að við hugsum allt upp á nýtt? Er þá ekki rétt að láta gamminn geysa, verið getur að eitthvað komi nýtilegt út úr því. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dingli

Þú segir aldeilis fréttirnar! Vissi að mikil orkusóun ætti sér stað í Kröflu, en að nýtingin væri aðeins 15% hvarflaði ekki að mér. Slík sóun er ekki verjandi og ber því að loka búllunni ef ekki finnst leið til bóta hið snarasta. Ylræktarver í yfirstærð, ætti að geta fengið orku sem fer annars til spillis á spottprís.

Ef það er svo rétt hjá þér, að áætluð orkunýting Þeystareykja sé á svipuðum nótum, þá er mér óskiljanlegt að virkjun þar sé yfirleitt til umræðu.

Í raun er þetta svo snargeggjað, að engu tali tekur.

Dingli, 27.6.2010 kl. 04:45

2 Smámynd: Klukk

Hvernig væri nú að óupplýstir kauðar eins og þú, Sigurður Grétar, færuð nú að læra á Moggabloggið áður en þið brigslið öðrum um nafnleysi á þeirra eigin síðum og afhjúpið þannig algjöra vanþekkingu ykkar á reglunum?

Klukk, 27.6.2010 kl. 10:07

3 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Nú skil ég af hverju þú "Klukk" vilt ekki gefa upp þitt rétta nafn. Þá er svo einfalt að geta sent samferðamönnum sínum brigsl og svívirðingar, það er svo auðvelt að vega að öðrum úr launsátri. En það hefur aldrei borið örðu vitni en  um heigulshátt þess sem þannig vinnur.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 27.6.2010 kl. 11:02

4 Smámynd: Klukk

Mikið djö ... ertu vitlaus maður ... veistu ekki að blog.is leyfir engum að koma fram nafnlaust hér og að ef þú smellir á myndina af höfundinum á hans eigin bloggsíðu þá sérðu fullt nafn höfundar og eiganda síðunnar?

Þú ert alveg ga ... ga ... lú og ættir ekki að vera að tjá þig án þess að fá óvitlausa til að lesa það yfir fyrst.

Klukk, 27.6.2010 kl. 11:31

5 Smámynd: Klukk

Sjáðu til dæmis hann "Dingli" hér fyrir ofan. Með því að fara á heimasíðu hans og smella á myndina af honum sé ég strax að þar fer enginn annar Ingimar Brynjólfsson, fyrrverandi sýslumaður og 12 barna faðir.

Klukk, 27.6.2010 kl. 11:35

6 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Klukk, ég hef samúð með þér. Einstaklingur sem þarf að nota svona munnsöfnuð eins og þú á í innri vandræðum:

Hvernig væri nú að óupplýstir kauðar eins og þú, Sigurður Grétar, 

Mikið djö ... ertu vitlaus maður ..

Þú ert alveg ga ... ga ... lú og ættir ekki að vera að tjá þig án þess að fá óvitlausa til að lesa það yfir fyrst.

Megirðu hafa það sem best í framtíðinni KLukk og ná tökum á þessum innri ofsa.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 27.6.2010 kl. 16:27

7 Smámynd: Klukk

Vá, maður, ekkert smá heimskulegt komment.

Og vælukjói í þokkabót?

Ja, hérna. Ekkert skrítið að þú skulir bara mega koma út tvisvar á dag.

Klukk, 27.6.2010 kl. 16:56

8 identicon

Mikið lifandi ósköp er þetta "Klukk" fyrirbryggði sjúkt. Er þetta mannvera?

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 18:18

9 Smámynd: Klukk

Nú, þabbarasona. Eru þeir nú líka búnir að sleppa þér út, Vilhjámur?

Klukk, 27.6.2010 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 113909

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband