Ríkisstjórnin lyppast niður fyrir öfgaöflunum í Vinstri grænum

Það er ekki hægt að kaupa friðinn á hvað verði sem er. Allt sem kom frá blaðamannfundi Jóhönnu og Steingríms staðfesti hrollvekjandi staðreyndir. Það á að vinna að því öllum árum að ógilda kaupin síðustu á Magma Energy, jafnvel að steypa Ríkissjóði í enn meiri skuldir til að eyðileggja þessa mjög svo vel þegnu útlendu fjárfestingu. Ég hef bent rækilega á það að arður af fyrirtækjum á Íslandi í eigu útlendinga fer að sjálfsögðu að einhverjum hluta til eigendanna. En ég hef líka bent á það að fyrirtæki í orkugeiranum að fullu í eigu Íslendinga borga ekki minni arð til útlendinga í formi vaxta að lánum sem tekin hafa verið í útlöndum til að reisa virkjanir hvort sem er vatnsaflsvirkjanir eða jarðgufuvirkjanir.

Ég hef ætíð haft mikið álit á Steingrími J. Sigfússyni en hann kaupir formannssætið í Vinstri grænum og stól fjármálaráðherra því verði að láta öfgafullar skoðanir Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur verða ráðandi stefnu í málefnum Magma Energy. Hins vergar hefði ég haldið að Jóhanna Sigurðardóttir og Samfylkingin létu ekki undan í þessu máli. Þetta mál er grafalvarlegt, ekki út af eignarhaldinu í Magma Energy heldur út af framtíðinni. En öfgahópurinn í Vinstri grænum ná fram sínum villtustu og heimskulegustu áætlunum er búið að vinna slíkt skemmdarverk á endurreisn íslenskara atviknunnuvega, gegn því að nokkrir útlendur fjárfestir vilji leggja fjármuni í íslenskt atvinnulíf, fjármagn sem okkur sárvantar. Ég endurtek; það er okkur mun hagkvæmara að fá áhættufjármagn frá útlöndum sem er á ábyrgð fjármagnseigenda en að taka yfirþyrmandi lán með vöxtum sem verður að greiða og einnig að endurgreiða lánin að fullu, undan því verður ekki vikist.

Ég hlýt að endurskoða stuðning minn við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna eftir þessa atburði. Það hefur verið að koma æ betur í ljós að Vinstri grænir eru ekki samstarfshæfir. Hélt lengi að Steingrímur formaður flokksins gæti ráðið þar ferðinni en því miður hefur hann verið kúgaður til hlýðni af öfgaöflum flokksins.

Og það sem er ennþá verra; Samfylkingin hefur einnig lyppast niður og keypt áframhaldandi líf Ríkisstjórnarinnar með því að láta undan öfgaöflunum í VG. 

Er þetta það sem koma skal, á að kaupa líf Ríkisstjórnarinnar hvaða verði sem er? Það er búið að rétta öfgaöflunum litla puttann, það verður ekki langt þar til þau taka höndina alla.

Það er skynsamlegra að draga að sér höndina og láta öfgaöfl Vinstri grænna sigla sin  sjó.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er kominn á þá skoðun að "órólega deildin" svokallaða í VG, sé bara að setja á svið litla leikþætti fyrir "ríkisstjórn fólksins", til þess að draga athyglina frá öðrum og mikilvægari málum sem ríkisstjórnin ræður ekki við, svo eftir mátulega langan tíma étur "órólega deildin" allt ofan í sig og fellst á einhverja fáránlega hluti eins og t.d í þessu Magma-máli.  Þetta getur verið "sniðug" PR starfsemi.

Jóhann Elíasson, 28.7.2010 kl. 13:22

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Þau eru svo aum að geta ekki einu sinni leyft frjálsar handfæraveiðar, þó því hafi verið lofað.

Svo horfa þau aðgerðarlaus á 17.000 manns atvinnulausa.

Aðalsteinn Agnarsson, 28.7.2010 kl. 15:20

3 identicon

Skil ekki svona blogg þar sem það er talinn hagur Íslands að selja frá sér allar eigur á slikk.   Fólk sem heldur þessu fram ætti að kynna þér ástandið í Argentínu þar sem sú leið var einmitt farinn.  minnir mann óneitanlega á söguna um hænuna sem verpti gulleggjunum.  Svo er hægt að taka nærtækari dæmi td. söluna á Landssímanum sem átti að standa undir byggingu nýs sjúkrahúss, hvar er sjúkrahúsið sem fékkst fyrir söluna á Landssímanum ?

Árni Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 113922

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband