Hokkýstafur Michael Mann er brotinn og á hauga kastað

Undirstaðan undir málflutningi Al Gore og IPCC, loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, eru kenningar bandaríska prófessorsins Michael Mann um að hitastig á norðurhveli hafi verið nær óbreytt frá 900 - 1900. Þetta sýndi hann með línuriti sem kallað hefur verið Hokkýstafurinn, línuritið minnir á liggjandi hokkýstaf þar sem blaðið vísar upp þar sem línurit M. Mann á að sýna hina miku hitaaukningu á 20. öld.

Ég hef áður minnst á Hokkýstafinn og m. a. bent á að hin virta Veðurdræðistofnun Danmerkur, DMI, hefur lýst Hokkýstafinn sem rakalaus vísindi og hafnað honum. Ég hef verði spurður um sannanir fyrir þessu og birti hér þessa tilkynningu frá DMI og línurit sem byggt er á mismunandi mælingum.

Hokkýstafurnn brotinn

Ég bendi einnig á að MISU, Meteorologiska Institutionen Stockholms Universitet, hefur afmáð hokkýstafinn af heimasíðu sinni og dæmt kenningar Michael Mann úr leik.

Samt berja menn höfðinu við steininn, telja kenningar IPCC og Al Gore vísindi en því miður eru þessi "vísindi" orðin trúarbrögð þar sem andstæðar skoðanir fást yfirleitt ekki birtar.

CO2 í gróðurhúashjálminum er innan við 1%, eitt af þeim efnum sem halda á okkur hita hér á jörðu. Hvernig getur þessi örstærð allt í einu haft svona mikil áhrif og hvaða sannanir eru fyrir því að sú aukning á CO2 frá því mælingar hófust (1958) sé af manna völdum? Og hvað sannanir eru fyrir því að CO2 valdi hækkun hita á jörðinni? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftslag.is

Fyndið að þú skulir nota þessa frétt, en í henni segir einmitt: "Det betyder ikke, at vi aflyser den menneskeskabte drivhuseffekt, men grundlaget er blevet mere nuanceret."

Einar Sveinbjörnssson skrifaði aðeins um þetta hér, sjá t.d. athugasemd frá Halldóri Björnssyni.  Talandi um hann, þá legg ég til að þú lesir bókina Gróðurhúsaáhrif og Loftslagsbreytingar eftir Halldór, en hann fer vel í fræðin á bakvið kenninguna um gróðurhúsaáhrifin. Meðal annars af hverju CO2 sem er í litlu magni skuli hafa slík áhrif sem raun ber vitni.

CO2 frá útblæstri jarðefnaeldsneytis hefur aðra samsetningu ísótópa en náttúrulegt CO2 - með því að mæla þessa ísótópa þá VITA menn að aukningin er frá útblæstri manna.

Loftslag.is, 3.5.2009 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband