Veldur olídæling úr iðrum jarðar jarðskjálftum?

Mikið hefur verið deilt á olíuleit og olíuvinnslu úr iðrum jarðar og þá aðallega vegna tveggja raka á móti slíku. Hættan af olíuslysum eins og nú er alvarlegt mál á Mexíkóflóa og að þar væri verið að vinna kolefni sem mundu auka koltvísýring CO2 í lofthjúpi jarðar. Olíuslysin eru staðreynd og eiga mjög líklega eftir að verða enn hrikalegri í framtíðinni. Hin mótrökin eru að með brennslu olíu muni CO2 magnið aukast og þar með muni hnattrænn hiti hækka. Ég hef oft og áður sett fram mín sjónarmið sem eru þessi:

CO2 er ein mikilvægasta gastegund heimsins og án hennar yrði hér enginn jarðagróði og súrefni takmarkað. Kenningin um að CO2 magn hækki hita hnattrænt hefur aldrei verið sönnuð. Hækkun hita er eitt, aukning CO2 annað. Persónulega óttast ég meira að hnattrænt fari hiti lækkandi en hækkandi, það er öllum aðgengilegt að kynna sér hvaða afleiðingar litla ísöld hafði á norðurhveli jarðar. Á árunum 1400 fram til 1800 var hnattrænn hiti skelfilega lágur eftir að hafa verið mun hærra en hann er í dag á landnámsöld, árin 900 fram til 1400.

En nú hefur  The University of Texas Institut for Geophysics (UTIG) sett fram ógnvænlega kenningu sem vert er að hugsa um. Stanslaus olíuvinnsla úr iðrum jarðar tæmir stóra geyma í jarðskorpunni, þar með hverfur sá mikli þrýstingur sem olía og gas myndaði. Öll sú spenna sem sem sá þrýstingur orsakaði hverfur og hvað þá? Er ekki líklegt að spennan í jarðskopunni færist til, er það svo ólíklegt að það geti orsakað jarðskjálfta?

Það væri fróðlegt ef jarðvísindamen okkar létu frá sér heyra um þessa kenningu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Við þetta má svo bæta að undanfarna daga og vikur hefur á öllum stærstu olíusvæðum heimsins orðið vart við þrýstingstoppa eins og þann sem sprengdi olíuborpallinn Deepwater Horizon á Mexíkóflóa nýverið. Það er eitthvað undarlegt að bærast um í iðrum Jarðar!

Guðmundur Ásgeirsson, 23.5.2010 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 113912

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband