Steinunn Valdís segir af sér, lágkúrulegar skoðanir Þórunnar Sveinbjarnarddótur

Þá kom að því. Steinunn Valdís segir af sé þingmennsku fyrir að hafa þegið hátt í 13 milljónir í styrki frá bönkum og bröskurum til handa sjálfri sér til að pota sér fremst í prófkjöri síns flokks; sem sagt til að geta tranað sér fram fyrir samherja sína, til að geta troðið þeim aftur fyrir sig. Ég sé enga ástæðu til að mæra þessa ákvörðun Steinunnar Valdísar, hún átti fyrir löngu að vera búin að sjá að með gjörðum sínum í síðustu prófkjörum Samfylkingarinnar sýndi hún mikinn siðferðisbrest. Það er engin afsökun að peningasníkjur hafi verið viðtekin venja. Hún var líka stórtækust í sníkjunum innan síns flokks en vissulega eru þar innan dyra fleiri sem ættu að skoða sína framgöngu. Ég hef margsinnis sagt að ég er í Samfylkingunni og geri þess vegna meiri kröfur til þeirra sem eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og á Alþingi fyrir Samfylkinguna en annarra flokka manna.

Ég lýsi því einnig yfir að viðbrögð Þórunnar Sveinbjörnsdóttur við þessum tíðindum, að Steinunn Valdís segði af sér, voru lágkúruleg svo ekki sé meira sagt. Hún hrósaði Steinunni Valdísi og tók sérstaklega fram að afsögn hennar væri fyrst og fremst til að styrkjar flokkinn, Samfylkinguna. En hvað með Alþingi, Borgarstjórn Reykjavíkur, hvað með þjóðina? Þarna birtist nákvæmlega það sama og kom fram hjá Þorgerði Katrínu þegar hún dró sig í hlé frá þingmennsku. Gjörðin var fyrst og fremst til að styrkja flokkinn hennar, Sjálfstæðisflokkinn, annað virtist ekki skipta máli.

Flokksræðishugsun þeirra sem nú eru í valdastöðum í þjóðfélaginu er orðið mein sem þessir sömu eru nú að súpa seiðið af.

En hvað um aðra stórbetlara í öðrum flokkum, ætla þeir að sitja sem fastast? Hvað um Guðlaug Þór, ekki var Steinunn Valdís hálfdrættingur á við hann í styrkjum til að knésetja félaga sína. Hvað um alla hina?. Steinunn Valdís hefur sýnt fordæmi sem stillir mörgum öðrum stjórnmálamönnum upp við vegg.

Þeirra er valið, er þeirra innri spilling á svo háu stigi að þeir sjá ekkert athugavert við eigin gjörðir?

Svo kemur næsta vandamálið. Um leið og einhver segir af sér kemur varamaður inn. Ég held að  margir séu stöðugt með hroll eftir að Óli Björn Kárason, holdgervingur óheftrar frjálshyggju, maður sem skuldaði í bönkunum hálfan milljarð (ekki hann sjálfur, félag sem hann átti, kom honum ekki við, ekki ber klárinn það sem ég ber eins og karlinn sagði) tók sæti hennar á Alþingi. 

Varamaður Steinunnar Valdísar kemur inn, það er Mörður Árnason. Ekki veit ég neitt um hvort Mörður hefur þegið styrki eða farið í sníkjur, tel samt nauðsynlegt að hann geri hreint fyrir sínum dyrum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laxinn

Ja thad er sorglegt thegar okkar astkaera land er stjornad af betlurum og mellum.

Laxinn, 28.5.2010 kl. 11:36

2 identicon

Ég verð að leyfa mér að taka hatt minn ofan fyrir þér og þínum skoðunum núna Sigurður Grétar. Mér finnst þú ótrúlega réttsýnn maður og þú lætur kki flokksskírteinið rugla þig í rýminu.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 17:13

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nákvæmlega engu við þetta að bæta.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.5.2010 kl. 21:36

4 Smámynd: Elle_

Verð að játa að ég var hissa og tek hatt minn ofan fyrir síðuhöfundi fyrir skrifin um Steinunni, Þorgerði og Þórunni.  Þær eru skammarlega flokkshollar.  Skil þó ekki hvernig nokkur maður með rænu getur verið flokksbundinn Samfylkingunni. 

Elle_, 28.5.2010 kl. 23:53

5 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Hvaða upphæð skal miða við áður en maður segir af sér? Hver er munurinn á því að taka við 200.000 kr styrk frá einum aðila eða 200.000 kr. styrk frá 10 aðilum og hafa þannig 2.000.000 upp úr krafsinu. Skipta þessar upphæðir einhverju máli? Er ekki aðalatriðið að væntanlega hafa þessir styrktaraðilar, allir, verið að vonast til þess að Steinun Valdís berðist fyrir þeirra hagsmunum. Hvaða hagsmunir voru það?

Kjartan Eggertsson, 29.5.2010 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 113885

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband