Athugasemd til Tryggva Gíslasonar sem er færi inn í mitt blogg

Tryggvi, þú ert einn af þeim mönnum sem ég hef fylgst með á minni löngu ævi, allar götur frá því þú varst fréttamaður á góðu gömlu gufunni og alltaf haft dágott álit á þér.

Að ofan kemur þú inn á eitt mikilvægasta hlutverk þeirra sem hafa verið kjörnir til trúnaðarstarfa á Alþingi. Ég veit, og það vitum við öll, að Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir tók við skelfilegasta búi sem nokkur Ríkisstjórn Íslands hefur fengið til úrlausnar. Þessi Ríkisstjórn hefur unnið þrekvirki en eflaust orðið oft á og ekki ráðið við öll verkefnin. Ég ber ómælda virðingu fyrir þeim Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, það eru þau tvö sem með órofa samstöðu  eru að draga okkur upp úr feni hrunsins. Mér finnst grátlegt að heyra og sjá stjórnarandstöðuna á þingi, þar er engin jákvæð rödd til, aðeins gamaldagsnöldur eins og best þótti á Hriflutímanum. Þó ég taki þannig til orða er ég þar engan veginn að vega að einum framsæknasta stjórnmálamanni Íslands fyrr og síðar, Jónasi frá Hriflu.

En stjórnarandstaðan á Alþingi er sífrandi hjörð vælukjóa sem halda að það eitt sé pólitík minnihlutans að vera sífellt á móti. Þeir eru vissulega samtaka þar Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins og Þór Saari talsmaður Hreyfingarinnar sem öllu ætlaði að breyta, allt ætlaði að bæta. 

Af hverju hefur Framsóknarflokkurinn ekki bætt við sig nokkru fylgi í skoðanakönnunum?

Af því að maðurinn sem áttu mesta möguleika í íslenskri pólitík til að hefja sig yfir dægurþrasið og gefa íslenskri pólitík nýjan tón, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sökk á kaf í þraspyttinn og lítilmennskuna, hann eyðilagði gjörsamlega möguleika Framsóknarflokksins til að verða endurnýjað afl í íslenskri pólitík og byggja aftur á samvinnuhugsjóninni sem á tvímælalaust að endurreisa á Íslandi. En arftaki Jónasar, Hermanns, Eysteins og Steingríms  kaus í þess stað að verða frosinn þrasbelgur sem hefur ekki bætt neinu við fylgi þess flokks sem kaus hann sinn foringja.

Sjálfstæðisflokkurinn er á algjöru valdi manns sem var eitt sinn glæstur foringi, Davíð Oddsson. Veikindi hans eru staðreynd, hann skilur ekki sinn vitjunartíma og þeir sem gerðu hann að ritstjóra Morgunblaðsins eru óhappamenn Íslands. Landfundur Sjálfstæðisflokksins sat skellihlæjandi undir ömurlegri ræðu Davíðs Oddssonar þegar bæði fyrrum fylgismenn hans og andstæðingar fylgdust með og hugsuðu það sama; hann átti skilið betra en að gera sjálfan sig að trúði

 Og þessi sami landsfundur kaus aftur drenginn úr Garðabæ með silfurskeiðina í munninum sem formann sinn, drenginn sem í dag þorir ekki að kvaka eitt orð nema fá til þess leyfi frá Hádegismóum. Þetta er flokkurinn sem hafði ekki vit á því að kjósa sem foringja sinn þrautreyndan mann til sjós og lands, Kristján Þór Júlíusson fyrrum bæjarstóra og sjómann. Mann með þá reynslu sem er mikilvæg fyrir þann sem tekur að sér forystuhlutverk í íslenskri pólitík.

Ég ætla ekki að eyða fleiri orðum á það fámenna lið sem telur sig til Hreyfingarinnar, Þetta ruglulið sem ætlaði öllu að bjarga en eru í dag ekkert annað en innantómir þrasbelgir sem koma ekki fram með eitt einasta jákvætt kvak.

En hvers vegna er ég að harma það að flokkar, sem ég fylgi ekki, hafa  verið svo seinheppnir í að velja sér lélega forystu? Ætti ég ekki að vera ánægður með það að dusilmenni séu í forystu í mínum andstöðuflokkum?

Nei, svo langt frá því. Við þurfum öll á því að halda að hinir víðsýnustu og hæfustu séu í forystu í öllu þeim öflum og flokkum sem fulltrúa eiga á Alþingi. Það er höfuðnauðsyn til að við getum myndað öfluga Ríkisstjórn til að takast á við þau vandamál sem þjóðin glímir við. 

Hinsvegar er ég nú svo gamall sem á grönum má sjá; mér finnst vandamál íslensku þjóðarinnar i dag ekki vera nema stormur í vatnsglasi miðað við hvaða erfiðleika var við glíma fyrr á árum.

Tryggvi, þetta átti aðeins að vera stutt athugasemd en orðið nokkuð lengri en ég ætlaði. Taktu það ekki illa upp þó ég afriti hana og lími inn í eigið blogg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er miklu hreinni maður en þínir vinstri foringjar samanlagðir. En um hinn ágæta Tryggva Gíslaon bendi ég þér á skemmtilega myndasíðu í nýútkomnum Sunnudagsmogganum, þar sem þú finnur hann á ýmsum tímum með fjölskyldu og vinum.

Jón Valur Jensson, 4.9.2010 kl. 14:11

2 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Jón Valur, þú verður að hafa aðdáun þína á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í friði fyrir mér. Ég sé ekki Sunnudagsmoggann eða aðra Mogga. Þrátt fyrir að hafa verið pistlahöfundur Morgunblaðsins í 16 ár þá sagði ég blaðinu upp þegar Davíð Oddsson varð ritstjóri blaðsins og lét það verða eitt af sínum fyrstu verkum að ráða sóðakjaftinn Sverri Stormsker sem pistlahöfund við blaðið.

Að geta kippað saman stjórnmálamönnum eftir skoðunum og stimplað þá "hreina" eða ´"óhreina" eru slík lágkúra að þú mátt eiga hana fyrir mér, ég mun aldrei flokka menn þannig.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 4.9.2010 kl. 17:03

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Takk fyrir svarið, Sigurður Grétar, en Sverri Stormsker er löngu hættur sem pistlahöfundur við Morgunblaðið.

Ég vil nú fá að kalla Sigmund hreinan, hvað sem þér finnst. Hann er enginn "frosinn þrasbelgur", heldur málafylgjumaður fyrir góð mál eins og okkar lögvarða málstað í Icesave-deilunni.

Það mun hafa verið 24. júní sem Steingrimur J. sagði á Alþingi, að Sigmundur Davíð væri "mikill áhugamaður um að útlendingar tapi sem mestu á Íslandi." Þessi niðrunarorð tel ég ankannaleg, sprottin af ranghugsun og Steingrími ekki til sóma.

Jón Valur Jensson, 4.9.2010 kl. 18:00

4 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Ég dæmi Sigmund Davíð ekki eftir orðum sem Steingrímur J. hefur látið falla um hann eða einhverjir aðrir. Ég dæmi hann eftir hans eigin gjörðum og orðum eftir að hann varð formaður Frambókarflokksins og alþingismaður. Sigmundur Davíð kom inn sem óskrifað blað með hreint borð ef við viljum hafa það þannig. Hann hafði alla möguleika á að hefja sig yfir dægurþrasið, en sökk í þess stað í þann forarpytt.

 Jón Valur, við höfum greinilega mjög ólíkar skoðanir á því hvernig þjóðmálaumræðan á að vera, mér sýnist þú vilja sjá allt í svörtu og hvítu og flokka menn í dilka sem"slæma" og "góða". Ég er tilbúinn að skoða hvert mál, gagnrýna hvern sem er en ekki eftir fyrirfram ákveðnum nótum

Mér finnst sorglegt hvernig stjórnarandstaðan starfar á Alþingi en þú ert líklega á annarri skoðun.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 8.9.2010 kl. 17:03

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er svolítið hissa á þér, Sigurður Grétar, að allan tímann í þessari margra daga umræðu okkar hefurðu ekki komið með nein dæmi um þínar hörðu umsagnir hér um Sigmund Davíð – hissa og ekki hissa, því að í 1. lagi hefði ég búizt við, að þú reyndir að rökstyðja þitt mál, en í 2. lagi veit ég ekki neinar vammir og skammir upp á Sigmund Davíð. En kannski það sé nóg fyrir þig, ef þú er mikill Icesave-borgunarsinni, að vita einhverja þingmenn tala gegn því áliti þínu, til að þú stimplir þá þar með "þrasgefna".

Jón Valur Jensson, 8.9.2010 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Grétar Guðmundsson

Höfundur

Sigurður Grétar Guðmundsson
Sigurður Grétar Guðmundsson
Er vatnsvirkjameistari og orkuráðgjafi, býr í Þorlákshöfn. Höfundur "Lagnafrétta" í Fasteignablaði Mbl. í 16 ár
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...Djúpós
  • ...Kötluhlaup
  • ...Kötluhlaup
  • picture 3 1052200.png
  • ...osum_991993

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband